top of page

Montessori á Íslandi

Eins og stendur er ekki til neinn Montessori skóli hér á landi. Það hafa þó verið gerðar nokkrar tilraunir.

 

Aðalbjörg Sigurðardóttir (1887-1974) var sú fyrsta sem kynnti Íslendingum fyrir Montessori kerfinu. Hún flutti fyrirlestur um efnið árið 1918 þegar þessar kennsluaðferðir voru enn nýjar. Aðalbjörg var frumkvöðull Barnavinafélagsins Sumargjöf og stuðlaði að bættum kjörum barna og einstæðra mæðra.

Aðalbjörg ásamt Jónu Sigurjónsdóttur gerðu tilraun á Montessori skóla hér á landi frá 1923 til 1925. Það fundust litlar sem engar upplýsingar um hvernig hafi gengið með þessa tilraun en hún var stuttlíf. Þar sem Montessori dagheimilið var ekki ríkiskóli var það ekki á skrá. Þar að leiðandi var þessari tilraunkennslu ekki fylgt eftir.

 

Árið 1999 styrkti menntamálaráðuneytið leikskóla að nafni Hvammur til að viðhalda einni Montessori deild en sú deild er ekki til lengur.

Á bilinu 2006 -2007 var svokallað Montessori setur með húsnæði í Sjálandsskóla í Garðabæ. Þessi leikskóli var rekin af Beverly og Einari Gíslasyni. Þeim skóla var lokað stuttu seinna.

 

Stærsti vettvangur Montessori námstækniog námgagna í dag er án efa Vesturbæjarskóla. Þrátt fyrir að Vesturbæjarskóli sé ríkisskóli sem fer eftir aðalnámskrá hefur starfsemi þar verið frábrugðin öðrum skólum. Árið 1992 voru keypt Montessori námsgögn, sérstaklega til eflingu stærðfræðináms, og notuð síðan þá. Að sögn Hrefnu Birtu Björnsdóttur, deildarstjóra sérkennslu í Vesturbæjarskóla,  hafa þau ekki verið notuð nógu markvist síðustu árin  en vilja byrja aftur að nota námgögnin í meira mæli. Eins og staðan er núna eru Montessori stærðfræði gögnin mest notuð fyrir börn í 1. og 2. bekk í vali. Valtímarnir fara þannig fram að börnin mega velja sér eitthvað að gera úr ákveðnum möguleikum og halda sig við það verkefni í valtímanum. Í þessum tímum eru aldursblandaðir bekkir. Aðferðir Montessori eru einnig sýnilegar í Vesturbæjarskóla í gegnum traust sem rýkir milli skólans og nemenda. Sem dæmi er skólastofum aldrei læst og bókasafninu ekki heldur.  

 

Montessori kennslu aðferðirnar hafa komið hingað til lands í sveiflum en ekki staldrað við voða lengi. Mér finnst það synd og vil endilega sjá Montessori skóla rísa hér í framtíðinni.

Laugalækjarskóli

Júní 2016

bottom of page