Lilja Ragnheiður Einarsdóttir
Lokaverkefni 10. bekkjar
Montessori
Montessori Nám
“Nýja menntuninn hefur uppgötvun og frelsun barnsins sem aðal markmið ”
- Maria Montessori-
Aðferðir Dr. Montessori felast í því að gefa börnum frelsi til þess að hreyfa sig sjálfstætt í rými sem hentar þeim með nóg af námstækjum til þess að vekja forvitni og virkja skynfæri þeirra og færni til náms. Þau fá að velja sér viðfangsefni og fara á sínum eigin forsendum frá einu verkefni í annað. Montessori sá hefbundna skólakerfið, þar sem þögn og kyrrseta eru dyggðir, sem hamlandi fyrir sjálfstæðan þroska barna og færni þeirra til að ganga í gegnum lífið á sinn eigin hátt. “Þjónar okkar eru ekki háðir okkur, heldur erum það við sem erum háð þeim.” (Montessori, The Montessori Method, 1964, bls. 96) Hér meinar hún að þegar fólki er þjónað og allt gert fyrir það, sem á tímanum sem hún var uppi þótti vera lífsgæði, missir fólk hæfileikann til sjálfstæðra aðgerða og hugsana. Þroski þeirra til ákvarðanatöku hefur verið hamlaður og ef þetta fólk vaknar upp við að vilja breyta lifnaðarháttum sínum er fólkið ekki fært um það. Miklu frekar eigi að kenna börnum, eins fljótt og auðið er, að bæta sig og uppgötva lífið á eigin forsendum, vera þeim til stuðnings og leiðbeiningar en ekki þjónustu.