top of page

Mín Reynsla

Þegar ég bjó í útlöndum upplifði ég sjálf að læra í Montessori kerfinu. Ég var í þessum skóla frá fimmta upp í sjönda bekk og naut mín gríðarlega. Þetta ver lítill skóli sem var hýstur víðsvegar í borginni og var aðalega með leikskóla en einnig kerfi alveg upp í 18 ára. Öll húsakynnin þarna eru hugguleg og annarsvegar í einbýlishúsum sem hafa verið inréttuð til að vera Montessori skólastofur og hinsvegar gamall bóndabær sem var gerður upp til að vera menntastofun. Allar staðsethingarnar hafa það sameiginlegt að vera með garð með vönduðum leiktækjum en einnig prýddur fallegum blómum. Umhverfið yfirhöfuð er litríkt og heimilislegt.

Ég deildi alltaf rýminu með krökkum sem voru á mínum aldri og að minnsta kosti einum aldurshóp í viðbót. Frá og með sjötta bekk voru krakkar frá 11 ára upp í 16 ára í sama rými. Þetta þroskaði mig mikið, sérstaklega félagslega. Ég lærði að tala við aðra á kurteisan og virðulegan hátt. Annað sem er mér einnig verðmætt er allt sem mér var kennt af samnemendum mínum. Kennararnir voru með innlagnir og svo voru skipulagðir tímar í efri bekkjunum en heill hellingur af því sem ég lærði kom frá eldri samnemendum mínum sem fannst gaman að sýna yngri nemendunum nýja hluti og hjálpa okkur með verkefnin okkar.

Vegna aldurs notaði ég aldrei námsgögnin fyrir menntun skilningavitanna en okkur var hinsvegar oft bennt á hvernig væri skynsamlegt að nota skynfærin í lærdómi okkar á hugtökum. Hugtakakennslan, sérstaklega stærðfræði og málfræði, var kennd með Montessori námgögnum sem hentuðu okkar námsefni. Okkur var gefið frelsi til að vinna sjálfstæð með námsefni við hæfi. Okkur bauðst einnig alltaf að vinna í litlum hópum og hjápast að. Sum verkefni voru ætluð öllum hópnum að leisa úr í sameiningu og þá fengum við, sérstaklega í efri bekkjunum, að ráða hvernig við skipulögðum okkur og hvernig við vildum framkvæma verkefnið. Best dæmið um þetta er árlega leikritið sem var sett upp. Allir máttu skrifa lítin hlut hanndritsins í samræmi við persónu og þema leikritsins. Síðan voru allir einnig gerðiri ábyrgir fyrir einhverjum þætti í leikritinu svo sem; búningum, dans, tónlist, ljósum, auglýsingum. Okkur var leiðbeint í rétta átt ef eitthvað mátti laga en mjög oft komu þær leiðbeinginar einmitt frá eldri nemendum en ekki kennurum. Þessar sýningar voru bygðar á samvinnu og trausti nemenda á hvor öðru.


Vist mín í Montessori skólanum í Brussel var einstaklega fræðandi en sérstaklega hlýleg og frábrugðin því sem ég hafði vanist áður. Reynsla mín af þessu kerfi er jákvæð og hefur haft rosaleg áhrif á mig. Núna eftir að hafa betri skilning á hvernig aðferðir Montessori virka get ég borið kennsl á ákveðna þætti í sjálfri mér sem eiga sér uppruna í Montessori og þeir eru mér virkilega kærir.  

Laugalækjarskóli

Júní 2016

bottom of page