Lilja Ragnheiður Einarsdóttir
Lokaverkefni 10. bekkjar
Montessori
Æfingar úr hinu daglega lífi
Til þess að geta eflt skiningarvitin verður að vera ákveðin regla á hlutunum. Til dæmis er mjög erfitt að finna lykt ef nefið er stíflað vegna kvefs. Þess vegna er hreinlæti og heilsa stór hluti af Montessori kerfinu. Börnunum er kennt að klæða sig og þvo sér sjálf auk þess að hreyfingaræfingar eru daglegar. Dr. Montessori fann upp á sniðugum strömmum með tauji sem er hægt að smella, hneppa eða reima saman til að æfa sig.
Kennslustofan er innréttuð þannig að borð og stólar eru í réttri hæð fyrir börnin. Gögnin eru einnig öll í skúffum og hillum á aðgengilegum stöðum fyrir þau. Þetta gefur þeim frelsi til þess að hafa verulegt val á aðgerðum sínum. Í Montessori eru einnig sérstök borð með handlaugum og önnnur til að þvo upp leirtau. Það eru líka aðrar nauðsynjar í réttum hlutföllum fyrir börnin; sem dæmi eru litlir kústar, svuntur og tuskur sem henta litlum manneskjum. Börnunum er kennt að nýta sér umhverfi sitt og hafa hreint í kringum sig á sjálfstæðan hátt.
Lykilatriði í þessum efnum er að verki er aldrei lokið þar til er búið að ganga frá eftir sig aftur. Þegar er búið að hella vatni í glasið sitt, til dæmis, verður að setja vatnskönnuna aftur á sinn afmarkaða og áður tilgreinda stað.
![]() Hnepptur Strammi |
|---|
![]() Strammi með Reym |
![]() Smellu Strammi |
![]() Handlaug |
![]() Kústar |
![]() Hilla með Skúffum |
![]() Húsgögn í Stofu |
![]() Hilla með Gögnum |







