Lilja Ragnheiður Einarsdóttir
Lokaverkefni 10. bekkjar
Montessori
Agi í gegnum frelsi
Maria Montessori túlkaðu orðið agi á allt öðruvðisi hátt en samtímamenn hennar. Henni fannst að sá agi að geta verið kyrr og þögull án þess að velja það væri ekki mikils virði. Eitt gott dæmi er sem fylgir. Ef er búið að skrúfa borð og stóla niður í gólfið á þeim forsendum að börnin gætu gengið óvarlega um og skapað hávaða er einnig búið að koma í veg fyrir að þau læri að hreyfa sig friðsamlega. Í rými þar sem stólar eru fastir við gólfið gæti barn rekið sig í stól mjög oft en vegna þess að stóllinn dettur ekki mun barnið ekki breyta hegðun sinni. Í rými þar sem stólar eru ekki fastir getur barnið gengið óvarlega um og lent í því að stóll detti en þá mun barnið einnig lagfæra stólinn og passa sig að ganga betur um næst til þess að trufla ekki. Barnið agar þá sjálft sig og það er einmitt kjarni hugmynda Maríu. Montessori vildi að börn lærðu eins mikið og þau gætu af eigin mistökum án skamma. Þetta er hægt að sjá þegar kennararnir eru með innlögn. Þau sýna börnunum æfingarnar og bjóða þeim að gera þær. Ef barnið getur æfinguna án þess að mistakast getur barnið framkvæmt aðra aðeins erfiðari æfingu. Ef barninu mistekt er innlögninni lokið að því sinni og kennarinn á ekki að leiðrétta heldur leifa barninu að gera eitthvað annað. Barnið hefur þá æfinguna efst í huga þegar til innlagnarinnar er hugsað en ekki skammir. Dr. Montessori hélt því fram að ef skammirnar væru það sem barnið myndi eftir yrði það hrætt við að reyna aftur við æfinguna en með þögn kennarans er forvitni og athygli barnsins vakin við æfinguna, sérstakega ef það sér að önnur börn geti framkvæmt æfinguna.
Börn eru öll mismunandi og þroskast á sinn eigin hátt og Montessori vildi gefa þeim öllum tíma og athyggli til þess að gera það. Þess vegna eru ekki notaðar einkunnir eða aðrar leiðir til að bera saman börnin heldur aðeins æfingar sem gefa til kynna hvernig barnið þroskist.
