top of page

Niðurstöður

Montessori kerfið býður upp á einstaklingsmiðið nám í öllum fögum. Þar er kennarinn ekki aðalatriði heldur nemandinn. Kennararnir hafa tekið stöðu hjálpara og rannsakenda á því hvernig aðferðir séu bestar fyrir hvert og eitt barn. Í hinu hefbundna kerfi er kennarinn alltaf aðalatriðið því allir verða að hlusta á hann í einu og taka vel efittr til þess að dragast ekki aftur úr. Í Montessori kerfinu er í rauninni ekki neitt sem heitir að dragast aftur úr því börnin læra á sínum eigin forsendum. Börn í hefðbundna kerfinu verða helst öll að vera á sama stað í námefninu í öllum fögum og það getur reynst þreytandi og erfitt fyrir suma.

Í Montessori skólum eru blandaðir aldurshópar sem stuðla mikið að þroska þeirra, bæði með því að læra að þeim eldri og einnig að taka stöðu leiðbeinenda fyrir yngri samnemendur sína. Svoleiðis aðferðir verða líka til þess að félagsþroski barnanna er ekki bástaddur, það er nefnilega veruleg hömlun að geta ekki tjáð sig almennilega  við eldri eða yngri einstaklinga en maður sjálfur. Í hinu hefðbundna kerfi er börnum skipt í árgangi þar sem börn fædd á ákveðnu ári er hópað saman.

Börnin í Montessori skólum fá tækifæri til þess að temja sér verulegan sjálfsaga og skipulagningu á umhverfi sínu. Allt í kringum þau er aðgegnilegt og þeim er treyst fyrir því að nýta sér hlutina á réttan hátt. Til dæmis; ef barn sullaði vatni á gólfið er því sýnt hvar það getur fundið tusku til að þurrka vatnið en kennarinn gerir það ekki. Í hefðbundna skólakerfinu fá börn ekki sama tækifærið til að aga sig sjálf og virða umhverfi sitt. Ef börn komast upp með það að sulla vatni á matarborðið án þess að þau þurfi að gera neitt í því venja þau sig á að ganga illa um.

Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að Montessori skólakerfið hafi fjölmarga kosti. Ég átta mig einnig á því að ekki nógu margar faglegar rannsóknir hafa verið gerðar á raunverulegum hæfnismun MOntessori kerfisins og því hefðbundna. Það er hinsvegar margt í Montessori kerfinu sem mætti læra af og nota að hluta til í Íslenska skólakerfinu.

Laugalækjarskóli

Júní 2016

bottom of page