top of page

Montessori gögn

Maria Montessori vildi að umhverfi barnanna væri fallegt og örvandi fyrir hugann. Af þessum ástæðum eru öll Montessori kennslugögnin ásamt Montessori húsgögnunum úr vönduðum við og í fallegum litum. Hlutirnir í kringum börnin eru svo vönduð að þau beinlínis kalla á það að vera handleikin og skoðuð. “Rödd hlutanna" er nafnið yfir þetta fyrirbæri sem kallar á athygli barnanna. Aðal markmið gagnanna er að virkja sjálfstæða hugsun, skynfæri og getu til að framkvæma daglegar aðgerðir á sem vinsamlegastan hátt. Montessori notaði litlar mottur til þess að börnin hefðu afmarkað og þægilegt svæði til að vinna hvert og eitt verkefni. Þetta gerir að verkum að börnin truflist ekki, þar sem athygli þeirra beinist að takmörkuðu svæði. Maria Montessori hannaði mörg gagnanna en sonur hennar, Mario Montessori, hélt því áfram og jók fjölbreytni þeirra.

Laugalækjarskóli

Júní 2016

bottom of page