top of page

Inngangur

Dr. Maria Montessori er frumkvöðull að óhefðbundnu uppeldis- og menntunarkerfi sem hefur hlotið bæði hrós og gagnrýni síðustu öldina. Montessori byrjaði sálfræðilega tilraunakennslu sína á þroskahömluðum börnum stuttu fyrir aldamótin 1900. Hún þróaði í framhaldinu kerfið þannig að það hentaði einnig heilbrigðum börnum. Upprunalega voru aðferðir hennar ætlaðar börnum á aldrinum tveggja og hálfs árs til sex ára, en á þeim tíma sem Montessori var uppi hófst menntun barna ekki fyrr en á sjötta aldursári. Í gegnum árin hafa kenningar hennar náð til fleiri aldurshópa og er nú í sumum löndum hægt að útskrifast átján ára úr Montessori skóla. Montessori skólarnir eru fjölmargir um allan heim en hugmyndafræðin er ekki sérlega þekkt hér á Íslandi.

Fyrir lokaverkefni mitt í tíunda bekk ákvað ég að kafa betur ofan í þetta kerfi. Ég spyr mig út á hvað það gangi nákvæmlega og hver munurinn sé á því og hefðbundnu skólakerfi.  

Laugalækjarskóli

Júní 2016

bottom of page